**Fasteignahöllin** (sími: 420-3700) kynnir: Glæsilega 3-4 herbergja íbúð á 2 hæð í fjölbýli. Nýbúið að taka íbúðina í gegn.
Staðhættir & ástand:
Eignin er mjög vel staðsett og stutt í leikskóla, skóla, Reykjaneshöllina, Íþróttaakademíuna og matvöruverslun svo eitthvað sé nefnt. Við hliðina á blokkinni er fótbolta- og róluvöllur. Mikið endurnýjuð íbúð. Búið að endurnýja skolplagnir. Falleg næturlýsing er í eldhúsi, baði og gangi íbúðarinnar. Í kjallara er auka herbergi með aðgangi að baðherbergi hentugt í útleigu, einnig fylgir geymsla í kjallara íbúðinni. Í kjallara er einnig þvottahús og sameiginleg geymsla . 33 fm. bílskúr fylgir einnig eigninni .
Lýsing eignar: 3ja herbergja íbúð á 2. hæð.
Hol: með skápum á hægri hönd og eldhús á vinstri hönd.
Stofa: er rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt á svalir. Úr stofu er útgangur á svalirnar.
Eldhúsið: er mjög rúmgott og huggulegt með hvítri háglans innréttingu og náttúruflísum á gólfi.
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf og þar er falleg háglans innrétting. Náttúrusteinn á gólfum.
Svefnherbergið er með parket á gólfi.
Barnaherbergi: er beint á móti útihurðinni, þar er parket á gólfi.
Þvottahús: er í kjallara ásamt sameiginlegri geymslu.
Geymsla: er í kjallara
Björt og rúmgóð íbúð sem vert er að skoða. Bókaðu skoðun strax í dag!
Bókaðu skoðun strax í dag!
Allar nánari upplýsingar um þessa eign veitir starfsfólk Fasteignahallarinnar í síma: 420-3700
Fasteignahöllin - fasteignasala er með skrifstofur að Hafnargötu 16 í Reykjanesbæ. Opið er alla virka daga frá 9-17. Sími: 420-3700.
New Page 2
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA GÖTUKORT AF REYKJANESBÆ
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA HEIMASÍÐU REYKJANESBÆJAR


