ÓBREYTTIR VEXTIR HJÁ ÍLS

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir
sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða
áfram 4,5% en 5,0% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.
Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem
haldið var 27.apríl 2010 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,85%
Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,30%, vegna útlánaáhættu 0,35% og vegna
uppgreiðsluáhættu 0,50%.
Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðar vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af
fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi, samkvæmt 3.
mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, og 14.
gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf.

 
Fasteignahöllin Hafnargata 16, 230 Keflavík. Sími 420 3700 Fax 420 3701 Kt. 421205-0780
.: Keyrt af Vefumsýslukerfi Habilis :.