Eignaskráning

Margt þarf athuga við sölu á fasteign.

Söluumboð

í 9. grein laga um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu kemur fram að fasteignasali skuli gera skriflegan samning við þann er til hans leitar um kaup eða sölu eignar eða aðra þjónustu. Samningurinn skal gerður áður en fasteignasali tekur til við starfann. Í samningi skal tilgreint hvaða verkefnum fasteignasali eigi að sinna, hver þóknun hans sé fyrir starfann eða hvernig hún skuli ákveðin og hvaða útlagðan kostnað viðsemjandinn eigi að greiða. Greina skal sérstaklega ef fasteignasali hefur einn rétt til sölu eignar og í hve langan tíma sá réttur hans á að standa.

Stimpil- og þinglýsingargjöld

Kaupandi greiðir stimpilgjöld af kaupsamningi, veðskjölum og afsali um leið og þau eru lögð inn til þinglýsingar en ef seljandi lætur umboðsmann undirrita skjöl fyrir sína hönd þarf hann að þinglýsa umboðinu og greiða þinglýsingargjald kr. 1.350. Fasteignasalan sér um þessa pappírsvinnu ef vill. Þinglýsing kaupsamnings kostar 0,4% af fasteignamati eignarinnar.

Aflýsing lána
Ef tilgreint er í kaupsamningi að seljandi skuli aflétta einhverjum áhvílandi lánum er vissara að huga að því strax, því það gæti tekið tíma. Kaupandi hefur heimild til þess að halda eftir greiðslu ef ekki er búið að aflýsa lánum á umsömdum tíma. Ef lán er greitt upp fæst bréfið afhent og passa þarf upp á að á það sé áritað að því megi aflýsa, þar sem það sé að fullu greitt. Síðan er það afhent hlutaðeigandi sýslumannsembætti til aflýsingar.
Geymið öll skjöl vegna sölunnar

Gætið réttar ykkar - forðist stimpilsektir - þinglýsið skjölum strax - leitið ráða ef vanda ber að höndum. Varðveitið gaumgæfilega öll skjöl sem snerta fasteignaviðskiptin, s.s. kaupsamning, afsal, veðskuldabréf, kostnaðaruppgjör, allar kvittanir vegna afborgana af lánum, greiðslu fasteignagjalda, húsgjalda o.fl.

Uppgjör fasteignagjalda og vaxta

Uppgjör vegna fasteignagjalda og vaxta af yfirteknum lánum miðast við afhendingar-dag, þ.e. seljandi greiðir þessi gjöld til þess dags. Kaupanda er heimilt að draga gjaldfallnar afborganir, vexti og kostnað, er seljanda ber að greiða, af þeirri útborgunargreiðslu sem fellur næst á eftir gjalddaga fasteignagjalda og yfirtekinna veðskulda. Uppgjör vegna þess fer fram á fasteignasölunni, annaðhvort við undir-ritun kaupsamnings eða við afsalsgerð.

Samþykki maka

Samþykki maka þinglýsts eiganda þarf fyrir sölu og veðsetningu fasteignar, ef fjölskyldan býr á eigninni eða ef eignin er notuð til atvinnurekstrar beggja hjóna eða annars þeirra.

Afhending og skil

Afhenda skal fasteignina á umsömdum degi og skila henni hreinni. Láta þarf lesa af rafmagns- og hitaveitumælum á afhendingardegi og tilkynna nöfn nýrra greiðenda. Seljanda ber að tilkynna húsfélagi um nýjan félagsmann og hann útvegar yfirlýsingu húsfélags og skal hann vera skuldlaus við hússjóð við sölu/afhendingu fasteignar.

Yfirlýsing húsfélags

Mikilvægt er að fyrir liggi yfirlýsing húsfélags m.a. um húsgjöld, yfirstandandi eða væntanlegar framkvæmdir sem búið er að ákveða á fundi húsfélags , stöðu eiganda gagnvart hússjóði og framkvæmdasjóði húsfélags. Þarna er um mikilvægan þátt að ræða sem huga þarf vel að. Það skiptir að sjálfsögðu kaupanda miklu að hafa þessar upplýsingar réttar. Slíkar upplýsingar þurfa að liggja fyrir af hálfu gjaldkera/formanns húsfélags og gæta þarf vel að því að upplýsingarnar séu nýjar. Seljandi þarf einnig að staðfesta að þessar upplýsingar séu réttar.

Skiptasamningur

Lögum samkvæmt eiga að vera til skiptasamningar um öll fjölbýlishús. Fjölbýlishús eða fjöleignarhús eins og þau heita í dag eru þær eignir sem hafa að geyma tvær eða fleiri íbúðir. Nokkuð algengt er að skiptasamningur hafi ekki verið gerður um fjöleignarhús. Þetta er sérstaklega algengt með eldri eignir. Ef skiptasamningur hefur ekki verið gerður um eignina þegar hún er seld er það kaupandinn sem sér um þetta þegar þar að kemur. Já, það borgar sig að bretta upp ermarnar því algengt er að það taki allt að sex mánuði að ganga frá skiptasamningi. Kostnaður við gerð skiptasamnings greiðist af íbúðareigendum í viðkomandi fjöleignarhúsi.

Annað:

Við viljum eindregið hvetja seljendur til að upplýsa kaupanda um allt er skipt gæti hann máli, er hann myndar sér skoðun um tiltekna eign. Er þar átt m.a. við ástand eignarinnar.
Getur þetta sparað mikil óþægindi síðar meir.

Svk. hinum nýju lögum er ennfremur minnt á að minniháttar gallar teljast ekki gallar í fasteignaviðskiptum. Ennfremur eiga kröfur kaupanda að miða við aldur og ástand eignarinnar. Þannig að kröfurnar eru meiri til nýrri eigna en eldri eigna.

 
Fasteignahöllin Hafnargata 16, 230 Keflavík. Sími 420 3700 Fax 420 3701 Kt. 421205-0780
.: Keyrt af Vefumsýslukerfi Habilis :.