Ferlið eftir kauptilboð.
Við samþykki kauptilboðs fer í gang ferli svo hægt sé að halda kaupsamning. Mikilvægt er að kaupandi geri það sem hann getur til þess að þetta ferli gangi fljótt og vel fyrir sig.
Kaupandi þarf að ganga frá fjármögnun sem felst meðal annars í því að:
1. Fara í greiðslumat hjá þeirri lánastofnun sem kaupandi ætlar að taka lán hjá. Hjá Íbúðarlánasjóði er gert greiðslumat á netinu www.ibudalan.is sækja svo um lánið í framhaldi af greiðslumati þ.e. þegar samþykkt kauptilboð liggur fyrir. Hjá bönkum þarf að koma með launaseðla síðustu 3ja mánaða og skattaskýrslu síðasta árs.2. Láta sölufulltrúa vita um leið og lán hefur verið samþykkt.
3. Koma frumriti greiðslumats, skuldabréfa og/eða lánsloforðs til Fasteignasölunnar sem allra fyrst
Það sem kaupandi þarf að greiða við kaupsamning:
1. Útborgun samkvæmt samning
2. Umsýslugjald til fasteignasölunnar
3. Lántökugjald til seljanda
4. Þinglýsingarkostnað og
5. Stimpilgjöld af lánum
 
Fasteignahöllin Hafnargata 16, 230 Keflavík. Sími 420 3700 Fax 420 3701 Kt. 421205-0780
.: Keyrt af Vefumsýslukerfi Habilis :.