Staðhættir & ástand:
Húsið er í góðu hverfi í Reykjanesbæ, nánar tiltekið í Njarðvík, nálægt grunn- og leikskóla. Nýbúið að taka bílskúrinn í gegn að utan jafnt sem innan.
Lýsing eignar: Gott parhús á 2. hæðum. Á neðri hæð er stofa, borðstofa, baðherbergi, eldhús, geymsla, búr og þvottahús. Úr þvottahúsi er útgengt á baklóð. Á efri hæð eru 2 herbergi og baðherbergi.
Anddyri: flísalagt
Gangur: parket
Stofa/borðstofa: er björt og rúmgóð. Parket á gólfum.
Eldhúsið: með fallegri innréttingu og parket á gólfum.
Þvottahúsið er inn af eldhúsi: útgengt á baklóð, málað gólf.
Búr: inn af eldhúsi. Málað gólf.
Geymsla: undir stiga
Efri hæð:
Herbergjagangur: með parketi.
Svefnherbergið er með dúk á gólfum. Fataherbergi inn af svefnherbergi og útgengt á svalir.
Barnaherbergi 1: teppalagt. Búið að gera eitt herbergi úr tveimur en lítið mál að breyta aftur í 2 barnaherbergi.
Baðið: gólf flísalagt og flísar upp á veggi. Hvít innrétting, baðkar og sturta.